asgardsskoli
Útskrift 2026 - ræða skólastjóra
Útskrift!
Í gær lauk fimmta starfsári Ásgarðsskóla með hátíðlegri og skemmtilegri útskrift. Skólastjórinn okkar og eigandi, Kristrún Lind Birgisdóttir, hélt þar ræðu sem sannarlega á erindi við alla sem vilja kynna sér skólann.
Ræða skólastjóra:
Kæru útskriftarnemendur, foreldrar, aðstandendur og starfsfólk Ásgarðsskóla.
Skólinn okkar er ekki hefðbundinn og hlutverk mitt ekki heldur. Ég vinn aðallega með starfsfólkinu en Óskar Finnur Gunnarsson stjórnar öllu daglegu starfi með nemendum og foreldrum og í raun er eðlilegra að þið lítið á hann sem skólastjóra inni í skólanum sjálfum. En við gerum auðvitað hlutina ekki eins og aðrir gera þá og það á við um nánast allt sem við gerum.
Í Ásgarðsskóla hefur skapast hefð fyrir hátíðlegum skólaslitum og útskriftardegi. Það hefur ekki alltaf verið þannig enda voru fyrstu skólaslitin og útskriftirnar eingöngu haldnar í skólastofunni okkar á Zoom, en smám saman hafa skólaslitin orðið veglegri. Þetta er annað árið sem við höfum verið hér í þessum glæsilega sal og alltaf eru einhverjir líka í skólastofunni okkar á Zoom.
Í dag erum við að slíta Ásgarðsskóla í fimmta sinn. Ég verð að játa að ég þurfti að telja árin á fingrunum til þess að vera viss um að starfsárin séu raunverulega búin að vera fimm.
Skólastarfið byrjaði með einum kennara og nokkrum nemendum haustið 2021 en í desember var fyrsti kennslustjórinn ráðinn. Síðan hefur skólinn vaxið ár frá ári. Vorið 2022 útskrifuðum við fimm nemendur, í dag útskrifum við 24 nemendur en í heildina hafa 98 nemendur útskrifast úr Ásgarðsskóla á síðustu fimm árum.
Mig langar að þakka kennurum okkar og starfsfólki sérstaklega fyrir þolinmæðina á síðustu árum. Þið hafið byggt upp skóla þar sem nemendur finna fyrir öryggi, virðingu og trú á eigin getu. Takk fyrir fagmennskuna, þolinmæðina og umhyggjuna sem þið sýnið á hverjum degi.
Mig langar líka að þakka foreldrum og aðstandendum. Sum ykkar höfðu reynt fjölmargar aðrar leiðir áður en þið funduð Ásgarðsskóla. Þið tókuð ákvörðun um að treysta okkur fyrir börnunum ykkar og fyrir það erum við ævinlega þakklát. Traustið sem þið hafið sýnt okkur hefur skipt sköpum því annars hefði okkur ekki tekist að móta skólastarfið. Þið hafið hleypt skólastarfinu inn á heimilin ykkar og án ykkar gæti skólastarfið í Ásgarðsskóla ekki þrifist.
Sömuleiðis vil ég þakka þeim sveitarfélögum sem hafa unnið með okkur og treyst okkur fyrir nemendum sínum. Það samstarf hefur sýnt að þegar við setjum þarfir barna í fyrsta sæti er hægt að finna lausnir, jafnvel þegar þær liggja ekki í augum uppi.
Á heilu skólaári gerist margt skemmtilegt og nemendur fást við fjölbreytt verkefni, stór og smá. Hér er örstutt sýnishorn af viðburðum og nýjungum þessa skólaárs:
Staðloturnar voru fjórar á vegum skólans í vetur, fjölbreyttar og vel sóttar.
Krökkunum í 9. bekk stóð til boða að taka Matsferil MMS eins og öðrum grunnskólanemendum á Íslandi. Þau sem tóku þátt fengu mjög góða niðurstöðu og meðaltalið var yfir landsmeðaltali.
Í vetur fengum við marga góða gesti, svo sem Björn Berg sem fræddi okkur um fjármál í tengslum við lotu um sama efni, Sögu Úlfarsdóttur sem kom og sagði okkur frá gervigreind, Andreu og Kára frá
Fokk me fokk you
sem fjölluðu um sjálfsmynd, samfélagsmiðla og samskipti kynjanna svo einhver séu nefnd.
Við tókum þátt í Íslensku æskulýðsrannsókninni.
Keppnir eru ekki áberandi í Ásgarðsskóla, en í ár var haldin vegleg og mjög vel heppnuð ræðukeppni og svo má ekki gleyma glæsilegri lip sync keppni þar sem bæði nemendur og kennarar sýndu eftirminnileg tilþrif.
Starfamessan var nýjung. Þar voru 16 starfskynningar sem krakkarnir vilja sannarlega sjá aftur á næsta ári.
Í Ásgarðsskóla er sérstaklega lagt upp með að skólasamfélagið líti á heiminn sem eina heild, beri virðingu fyrir íbúum alheimsþorpsins, umhverfinu, menningu allra, stjórnmálum, tungumálum og listum. Ég held að það sé óhætt að segja að verkefnavinna nemenda sýni að nemendur okkar standi sannarlega undir þeim áherslum sem lagðar eru í skólastarfinu. Ég er vandræðalega spennt fyrir að sjá samantektina á verkefnunum sem krakkarnir unnu í
þemanu Lyklinum
núna í vor og kynnarnir Dóra og Birgitta fara betur yfir hér á eftir.
Ég er virkilega stolt af þessum mögnuðu verkefnum ykkar – þið eigið eftir að breyta heiminum til hins betra.
Ég vil þakka ykkur, krakkar, fyrir að hafa gefið Ásgarðsskóla tækifæri til að móta skólastarfið með okkur. Þið hafið verið dugleg við að koma með hugmyndir og hjálpað okkur og kennurunum að mæta þörfum ykkar og haldið okkur á tánum við að finna nýjar leiðir sem nýtast ykkur betur dag frá degi.
Þið eruð 24 sem útskrifist héðan í dag. Við ykkur vil ég segja: „Framtíðin er ekki eitthvað sem gerist, hún er eitthvað sem þið skapið.“
Innilega til hamingju með þennan mikilvæga áfanga. Við erum stolt af ykkur, þakklát fyrir að hafa fengið að vera hluti af ykkar vegferð og spennt að fylgjast með því sem framtíðin ber í skauti sér.
Til hamingju með útskriftina, kæru útskriftarnemar.
Ég hlakka til að sjá ykkur hin aftur í haust – þið hafið lagt mikið á ykkur í vetur og ég er sannfærð um að næsta skólaár verður enn betra en það sem er nú að líða.
Takk fyrir mig.
Saga Ásgarðsskóla
Saga Ásgarðsskóla
Saga og þróun, árangur og áskoranir
Á undanförnum árum hefur umræðan um menntun tekið miklum breytingum, bæði hér á landi og á alþjóðavettvangi. Aukin áhersla er lögð á farsæld barna, sveigjanleika í skólastarfi, persónumiðað nám og fjölbreytt námsumhverfi. Inn í þetta samtal fellur saga Ásgarðsskóla – skóla í skýjunum sem varð til út frá þörf fyrir fyrirmyndarskólastarf þar sem námskráin og starfshættirnir gerðu ávallt ráð fyrir að mæta nemendum þar sem þeir eru staddir en þvert á sveitarfélög og staðsetningu.
Upphafið – þegar fjarkennsla varð að skóla
Aðdraganda stofnunar Ásgarðsskóla má rekja til ársins 2017 þegar fræðslustjóri á Höfn í Hornafirði leitaði til ráðgjafarþjónustunnar Ásgarðs með beiðni um fjarkennslu fyrir nokkra nemendur í Hofgarði í Öræfasveit. Þar var um að ræða börn sem áttu erfitt með að sækja hefðbundið skólastarf vegna búsetu og aðstæðna. Beiðninni var tekið og í kjölfarið sinntu kennarar Ásgarðs fjarkennslu í fleiri sveitarfélögum, meðal annars í Norðurþingi og Reykhólasveit. Jafnframt komu upp fjölmörg önnur fjarkennsluverkefni þar sem ráðgjafar Ásgarðs störfuðu með nemendum sem af ýmsum ástæðum gátu ekki nýtt sér hefðbundið skólaumhverfi. Í upphafi árs 2020 var tekin ákvörðun um að stofna fullvaxinn grunnskóla sem starfaði alfarið á netinu – Ásgarðsskóli, skóli í skýjunum.
Hugmyndafræðin – jafnt aðgengi, minna álag, m
eiri tengsl
Upphaflega var meginsýn skólans að jafna stöðu barna í dreifbýli með því að tryggja þeim aðgengi að fjölbreyttu námi, menntuðum kennurum og félagslegum samskiptum við jafnaldra. Með nýtingu tækni var hægt að færa skólann til barnsins í stað þess að barnið þyrfti að ferðast langar leiðir eða stunda nám einangrað mögulega í mjög fámennum nemendahópi. Fljótlega varð þó ljóst að þessi sýn átti ekki síður við um börn í þéttbýli. Raunveruleikinn hefur sýnt að stór hluti nemenda Ásgarðsskóla kemur af höfuðborgarsvæðinu – börn sem hafa upplifað langvarandi vanlíðan, skólaforðun, kvíða og taugaþroskaáskoranir og alls ekki fundið sig í hefðbundnu skólaumhverfi. Einangrun nemenda var í miklu meira mæli félagsleg en reiknað hafði verið með og í raun ekki bundin við dreifðar byggðir nema í litlum mæli.
Formlegur rammi – þróunarleyfi og varanlegt skólaleyfi
Haustið 2021 fékk Ásgarðsskóli þriggja ára þróunarleyfi frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Í kjölfarið var staðfestur þjónustusamningur og settar reglur um innritun og útskrift, sem jafngildir í raun leyfi til að reka skólann. Skólinn er formlega skilgreindur sem sérskóli, þó að nemendur fari í gegnum allar námsgreinar og öll markmið aðalnámskrár grunnskóla á unglingastigi. Ástæðan fyrir því að skólinn telst ekki fullnuminn grunnskóli liggur fyrst og fremst í formkröfum sem tengjast skólahúsnæði – ekki gæðum námsins eða árangri og tækifærum nemenda.
Vöxtur og þróun – persónumiðuð nálgun í forgrunni
Í upphafi var aðeins einn nemandi skráður í skólann. Nemendum fjölgaði þó ört og í desember 2021 var fyrsti skólastjóri ráðinn í fasta stöðu. Í janúar árið eftir hófst starfsemi skólans í fullum mæli með fleiri kennurum og samhliða mikilli þróun við gerð námskrárinnar. Það reyndist flóknara en reiknað var með í fyrstu að skrá niður starfshættina og finna leiðir til að standa við þá stefnu skólans að mæta nemendum. Kennarar þurftu mikinn stuðning og smám saman var starfsþróunin bundin inn í starfið og stöðugri endurskoðun á skólanámskrá og útfærslum skólans komið fyrir. Allir nemendur vinna með sömu viðfangsefni en leiðin í gegnum námið er persónumiðuð. Leiðsagnarmat, skýr markmið og regluleg námsviðtöl eru í forgrunni, þar sem nemendur fá skýra mynd af stöðu sinni og næstu skrefum í námi. Skólinn hefur heimild og getu til að taka á móti 50 nemendum. Algengt er að nemendur bætist við eftir því sem líður á skólaárið sem endurspeglar að margir koma til skólans eftir erfiða reynslu annars staðar.
Reynslusögur foreldra – þegar lífið fer að lagast
Margar sögur foreldra lýsa áhrifum skólans á líðan barna og fjölskyldna. Eitt foreldri segir frá barni sem hafði nánast ekki mætt í skóla í tvö ár vegna mikils kvíða. Allar tilraunir í hverfisskóla höfðu mistekist og tilhugsunin um mætingu olli mikilli vanlíðan. Í Ásgarðsskóla breyttist allt. Ekki var eingöngu horft á mætingu sem markmið í sjálfu sér, heldur framfarir, tengsl og öryggi. Smám saman fór barnið að mæta, taka þátt og blómstra. Foreldrið lýsir því að stærsta pressan – að komast út úr húsi á morgnana – hafi horfið og með henni stór hluti álagsins á heimilinu.
Annað foreldri lýsir dóttur sem hafði ADHD-greiningu, var í greiningarferli vegna einhverfu og hafði glímt við mikla þreytu, niðurbrotna sjálfsmynd og félagslega einangrun. Þrátt fyrir góða mætingu í hefðbundnum skóla var álagið orðið henni ofviða. Í Ásgarðsskóla breyttist dagurinn: seinni byrjun, minna áreiti, skýr verkefni og gott aðgengi að kennurum. Eftir stuttan tíma fór barnið að sofa betur, hætti að vera úrvinda eftir skóladaginn, hóf aftur íþróttaiðkun og kláraði námið innan skólatíma – án þess að foreldrar þyrftu að kenna heima. Gleðin tengdist skólanum á ný.
Mat og námsframvinda – skýrleiki í stað óljósra einkunna
Í stað hefðbundinna einkunna leggur Ásgarðsskóli áherslu á framfarastiga og leiðsagnarmat. Nemendur eru staðsettir út frá matsviðmiðum skólans og aðalnámskrá og fá skýrar leiðbeiningar um hvað þarf til að bæta sig. Þetta gerir bæði nemendum og foreldrum kleift að skilja stöðuna, í stað þess að standa frammi fyrir bókstöfum eða tölum eingöngu sem segja lítið um raunverulega færni. Foreldrar upplifa að loksins skilji þeir námslega stöðu barna sinna og hvað þeir geti gert til þess að styðja við nám þeirra og framfarir.
Daglegt skólastarf – raunverulegur skóli í rauntíma
Skóladagurinn í Ásgarðsskóla er skipulagður og fyrirsjáanlegur. Kennsla fer fram í rauntíma, nemendur eru í tímum með kennurum og vinna verkefni í samvinnu við aðra. Þetta er ekki sjálfstætt fjarnám heldur lifandi námssamfélag þar sem samskipti og tengsl eru í forgrunni. Skólinn er ekki tímabundin lausn né „Covid-fjarnám“, heldur alvöru skóli með skólastjórn, kennara, sálfræðing, skólahjúkrunarfræðing og náms- og starfsráðgjafa.
Árangur og áhrif – meira en tölur
Rannsóknir á árangri skólans sýna að rúm 90% nemenda sem útskrifast fara í framhaldsskóla. Foreldrar lýsa aukinni félagslegri virkni, sjálfstrausti og betri líðan barna sinna. Í mörgum tilfellum hefur skólastarf Ásgarðsskóla haft lífsbjargandi áhrif, eins og vitnisburðir nemenda og foreldra sýna. Ótti við félagslega einangrun í skóla á netinu hefur ekki raungerst. Þvert á móti hafa margir nemendur eignast vini jafnvel í fyrsta sinn og taka þátt í skipulögðum hittingum og staðarlotum á vegum skólans og utan skólans.
Niðurstaða – skóli sem mætir samtímanum
Ásgarðsskóli er sprottinn upp úr raunverulegum þörfum barna og fjölskyldna fyrir lausn sem rífur félagslega einangrun í öruggu námsumhverfi heima fyrir. Hann sýnir að þegar skólastarf er byggt á fagmennsku, sveigjanleika og virðingu fyrir ólíkum þörfum nemenda getur árangurinn orðið djúpstæður – ekki aðeins námslega, heldur einnig félagslega og tilfinningalega.
Skólinn heldur áfram að þróast með það að markmiði að skapa fjölbreytt námsumhverfi þar sem fleiri börn fá tækifæri til að blómstra.
Kynning á Ásgarðsskóla - skóla í skýjunum
Kyning á starfsemi Ásgarðsskóla - skóla í skýjunum
23. janúar 2026
Smelltu hér til að taka þátt
skrá sig á fundinn
hér:
Facebook viðburður
- Gott að fá áminningu gegnum Facebook :)
bæta fundinum við Google dagatalið þitt
, þá getur þú gert það hér:
Bæta við dagatal
Við hvetjum öll þau sem hafa áhuga á skólastarfinu að mæta – hvort sem þið eruð að skoða skólann í fyrsta sinn eða viljið fræðast betur um starfið sem fram undan er.
Skólastarf í skýjunum er ekki hrist fram úr erminni eins og einföld skúffukaka!
Nýja árstíðin er góð ástæða til að taka og halda ályktanir. Hvort sem það er að borða rétt eða þrífa bílskúrinn, hér eru nokkur ráð til að gera og halda ályktanir.
Gerðu lista
Listar eru frábærar leiðir til að halda sér á réttri braut. Skrifaðu niður nokkra stóra hluti sem þú vilt ná og smá hluti líka.
Athugaðu listann reglulega
Ekki gleyma að kíkja inn og sjá hvernig þér gengur. Þó þú náir ekki stóru markmiðunum strax þýðir það ekki að þú sért ekki að taka framförum.
Verðlaunaðu sjálfan þig
Þegar þér tekst að ná markmiði, hvort sem það er stórt eða lítið, vertu viss um að klappa sjálfum þér á bakið.
Hugsaðu jákvætt
Jákvæð hugsun er stór þáttur í velgengni. Svo í stað þess að velta fyrir sér hlutum sem fóru ekki alveg rétt, minntu þig á hluti sem gerðu það.