Ásgarðsskóli kynntur á alþjóðlegri menntarannsóknaráðstefnu í Edinborg
Scottish Educational Research Association (SERA) hélt árlega ráðstefnu sína í Edinborg dagana 18.–19. nóvember. Kynning á Ásgarðsskóla – skóla í skýjunum var eitt af rúmlega 100 erindum ráðstefnunnar. Anna María Þorkelsdóttir, deildarstjóri stoðþjónustu Ásgarðsskóla, og Sólveig Jakobsdóttir frá Háskóla Íslands kynntu starfsemi skólans, skipulag hans og þann árangur sem náðst hefur.
Meginmarkmið ráðstefnunnar var að miðla niðurstöðum rannsókna og kynna rannsóknarverkefni sem unnið er að innan háskólasamfélagsins. Fjölbreytt viðfangsefni voru til umfjöllunar, en meðal þeirra sem fengu töluvert vægi voru skólasóknarvandi, inngilding, kynþáttafordómar og námskrárgerð.
Skólasóknarvandi og mikilvægi trausts
Skotar glíma, líkt og margar aðrar þjóðir, við vaxandi áskoranir tengdar skólasókn barna og ungmenna. Rætt var um mikilvægi þess að skilgreina vandann með skýrum hætti og finna leiðir til að skapa skólaumhverfi sem nemendur vilja sækja og þar sem þeir upplifa öryggi og vellíðan.
Í einu erindi var fjallað um aukinn skólasóknarvanda í kjölfar COVID-19 faraldursins. Þar var meðal annars sett fram sú túlkun að aðgerðir í faraldrinum hefðu haft áhrif á upplifun barna af öryggi skólaumhverfisins. Börnum hafi í raun verið send þau skilaboð að skólinn og samvera með öðrum börnum gætu verið óörugg. Þótt skólalokunum hafi verið beitt í mun minna mæli á Íslandi en víða erlendis er ekki þar með sagt að íslensk börn hafi farið varhluta af áhrifum faraldursins og þeirra aðgerða sem gripið var til.
Einnig var rætt um tvær nýlegar sprengjuhótanir sem tengdust grunnskólum í Skotlandi. Fram kom að slíkir atburðir væru til þess fallnir að draga úr trausti barna og foreldra til skólaumhverfisins. Traust reyndist þannig eitt af lykilhugtökunum í umræðunni um skólasóknarvanda og mögulegar lausnir.
Í Edinborg er meðal annars boðið upp á úrræði sem svipar til þess sem hér á landi var áður þekkt undir heitinu Morgunhanar. Úrræðið felst í því að starfsfólk heimsækir heimili barna sem eiga í erfiðleikum með skólasókn og reynir að styðja þau til að mæta í skólann. Að sögn rannsakandans er árangurinn oft takmarkaður og úrræðið bæði tímafrekt og kostnaðarsamt. Nefnt var dæmi um að það gæti tekið allt að þrjá mánuði að byggja upp nægilegt traust til þess að barn fengist til að svara þeim einstaklingi sem ítrekað kæmi að heimili þess og reyndi að ná sambandi.
Ásgarðsskóli vekur áhuga
Í okkar erindi kynntum við starfsemi Ásgarðsskóla, skipulag náms og kennslu, árangur skólastarfsins og niðurstöður ytra mats. Einnig fjölluðum við um upplifun og viðbrögð nemenda og foreldra.
Áhugi ráðstefnugesta á skólanum var töluverður en beindist að ólíkum þáttum starfseminnar. Einn viðmælandi hafði sérstakan áhuga á því hvernig við nýtum tæknina til að ná til nemenda og skapa aðstæður fyrir nám og samskipti. Annar hafði mestan áhuga á samþættingu námsgreina í skólastarfinu.
Sá viðmælandi, sem sjálfur starfar við rannsóknir, benti á að samþætting námsgreina hefði verið yfirlýst markmið skólayfirvalda í Skotlandi allt frá árinu 1965, en innleiðing hennar hefði gengið hægt. Að hans sögn teldu margir kennarar sig ekki sjá nægilegan tilgang með slíkum kennsluháttum. Þrátt fyrir að rannsóknir sýni fram á ávinning samþættingar skili sú þekking sér ekki nægilega vel inn í daglegt skólastarf.
Við í Ásgarðsskóla getum tekið undir mikilvægi samþættingar. Reynsla okkar sýnir að hún er afar gagnleg leið til að skipuleggja nám fyrir fjölbreyttan nemendahóp og skapa heildstætt og merkingarbært nám.
Einnig ræddum við við ráðstefnugesti sem vildu koma okkur í samband við kanadíska samstarfsaðila. Þeir töldu að skólaform á borð við Ásgarðsskóla gæti hentað vel í Kanada, þar sem miklar landfræðilegar fjarlægðir skapa áskoranir við að tryggja börnum aðgengi að fjölbreyttu námi. Þar beindist áhuginn sérstaklega að möguleikum fjarkennslu fyrir dreifbýl sveitarfélög.
Það sem undirritaðri fannst þó einna mest áberandi í samtölunum var hversu mikil áhersla er enn lögð á vandann sjálfan og hvernig hægt sé að fá börn til að mæta aftur í hefðbundið skólaumhverfi. Minna virtist rætt um lausnir sem fela í sér að skólastarfið aðlagist þörfum barnanna, jafnvel þannig að þau þurfi ekki að snúa aftur í það umhverfi sem þau treysta sér ekki til að sækja.
Umræða um skólaforðun virðist víða enn vera í mótun og þau úrræði sem reynd hafa verið hafa ekki skilað nægilega góðum árangri. Reynsla Ásgarðsskóla sýnir að mikilvægt er að horfa einnig til annarra leiða og endurskoða hugmyndir okkar um hvar og hvernig nám getur farið fram.
Gervigreind lítið til umræðu
Annað sem vakti athygli okkar Sólveigar var að á ráðstefnu með yfir 100 erindum virtist ekkert þeirra fjalla sérstaklega um gervigreind og áhrif hennar á menntun.
Sólveig vakti máls á þessu og fékk þau svör að Íslendingar væru ef til vill nýjungagjarnari en margar aðrar þjóðir. Við bentum hins vegar á að nemendur væru þegar farnir að nýta gervigreind í námi sínu, óháð því hversu langt skólar og háskólar væru komnir í umræðu um notkun hennar.
Viðmælendur okkar tóku undir það sjónarmið, en af samtölunum að dæma virðist umræðan um áhrif gervigreindar á nám, kennslu og menntun enn hafa fengið takmarkað rými innan þess rannsóknarsamfélags sem þarna kom saman.
Námskrárgerð og mikilvægi innra samræmis
Erindi okkar um Ásgarðsskóla féll undir þemað inngildingu, en mörg þeirra erinda sem undirrituð sótti fjölluðu einnig um kynþáttafordóma, skólasóknarvanda og námskrárgerð.
Umfjöllunin um námskrárgerð var sérstaklega áhugaverð í ljósi þeirrar umræðu sem nú á sér stað á Íslandi um breytingar á aðalnámskrá grunnskóla.
Eitt mikilvægasta atriðið sem þar kom fram var nauðsyn þess að tryggja innra samræmi námskráa. Þegar breytingar eru gerðar á einstökum köflum námskrár án þess að aðrir hlutar hennar séu endurskoðaðir samhliða getur skapast ósamræmi eða jafnvel mótsagnir. Kennarar standa þá frammi fyrir því verkefni að innleiða námskrá sem ekki er að fullu samkvæm sjálfri sér.
Þetta er mikilvæg ábending fyrir íslenskt skólasamfélag. Breytingar á aðalnámskrá þurfa að taka mið af heildarsamhengi hennar og tryggja að markmið, viðmið og áherslur styðji hvert annað. Annars er hætta á að innleiðingin verði ómarkviss og kennarar standi frammi fyrir ósamræmanlegum kröfum.
Mikilvægt að horfa til nýrra lausna
Þátttaka okkar í ráðstefnunni var bæði fróðleg og gagnleg. Hún gaf okkur tækifæri til að kynna starf Ásgarðsskóla á alþjóðlegum vettvangi, kynnast rannsóknum og ræða við fræðimenn sem takast á við svipaðar áskoranir og við þekkjum úr íslensku skólasamfélagi.
Það sem stendur þó helst upp úr er mikilvægi þess að horfa ekki eingöngu til þess hvernig fá megi nemendur til að laga sig að hefðbundnu skólakerfi, heldur einnig hvernig skólakerfið geti þróast og lagað sig að fjölbreyttum þörfum nemenda.
Þar teljum við að reynsla Ásgarðsskóla geti lagt mikilvægt af mörkum til áframhaldandi umræðu um inngildingu, skólasókn og framtíð menntunar.
Anna María Þorkelsdóttir
Deildarstjóri stoðþjónustu Ásgarðsskóla




