Útskrift 2026 - ræða skólastjóra

Harpa Jónsdóttir • 9. júní 2026

Útskrift!

Í gær lauk fimmta starfsári Ásgarðsskóla með hátíðlegri og skemmtilegri útskrift. Skólastjórinn okkar og eigandi, Kristrún Lind Birgisdóttir, hélt þar ræðu sem sannarlega á erindi við alla sem vilja kynna sér skólann.


Ræða skólastjóra:


Kæru útskriftarnemendur, foreldrar, aðstandendur og starfsfólk Ásgarðsskóla.

Skólinn okkar er ekki hefðbundinn og hlutverk mitt ekki heldur. Ég vinn aðallega með starfsfólkinu en Óskar Finnur Gunnarsson stjórnar öllu daglegu starfi með nemendum og foreldrum og í raun er eðlilegra að þið lítið á hann sem skólastjóra inni í skólanum sjálfum. En við gerum auðvitað hlutina ekki eins og aðrir gera þá og það á við um nánast allt sem við gerum.


Í Ásgarðsskóla hefur skapast hefð fyrir hátíðlegum skólaslitum og útskriftardegi. Það hefur ekki alltaf verið þannig enda voru fyrstu skólaslitin og útskriftirnar eingöngu haldnar í skólastofunni okkar á Zoom, en smám saman hafa skólaslitin orðið veglegri. Þetta er annað árið sem við höfum verið hér í þessum glæsilega sal og alltaf eru einhverjir líka í skólastofunni okkar á Zoom.


Í dag erum við að slíta Ásgarðsskóla í fimmta sinn. Ég verð að játa að ég þurfti að telja árin á fingrunum til þess að vera viss um að starfsárin séu raunverulega búin að vera fimm.

Skólastarfið byrjaði með einum kennara og nokkrum nemendum haustið 2021 en í desember var fyrsti kennslustjórinn ráðinn. Síðan hefur skólinn vaxið ár frá ári. Vorið 2022 útskrifuðum við fimm nemendur, í dag útskrifum við 24 nemendur en í heildina hafa 98 nemendur útskrifast úr Ásgarðsskóla á síðustu fimm árum.

Mig langar að þakka kennurum okkar og starfsfólki sérstaklega fyrir þolinmæðina á síðustu árum. Þið hafið byggt upp skóla þar sem nemendur finna fyrir öryggi, virðingu og trú á eigin getu. Takk fyrir fagmennskuna, þolinmæðina og umhyggjuna sem þið sýnið á hverjum degi.


Mig langar líka að þakka foreldrum og aðstandendum. Sum ykkar höfðu reynt fjölmargar aðrar leiðir áður en þið funduð Ásgarðsskóla. Þið tókuð ákvörðun um að treysta okkur fyrir börnunum ykkar og fyrir það erum við ævinlega þakklát. Traustið sem þið hafið sýnt okkur hefur skipt sköpum því annars hefði okkur ekki tekist að móta skólastarfið. Þið hafið hleypt skólastarfinu inn á heimilin ykkar og án ykkar gæti skólastarfið í Ásgarðsskóla ekki þrifist.


Sömuleiðis vil ég þakka þeim sveitarfélögum sem hafa unnið með okkur og treyst okkur fyrir nemendum sínum. Það samstarf hefur sýnt að þegar við setjum þarfir barna í fyrsta sæti er hægt að finna lausnir, jafnvel þegar þær liggja ekki í augum uppi.


Á heilu skólaári gerist margt skemmtilegt og nemendur fást við fjölbreytt verkefni, stór og smá. Hér er örstutt sýnishorn af viðburðum og nýjungum þessa skólaárs:


  • Staðloturnar voru fjórar á vegum skólans í vetur, fjölbreyttar og vel sóttar.
  • Krökkunum í 9. bekk stóð til boða að taka Matsferil MMS eins og öðrum grunnskólanemendum á Íslandi. Þau sem tóku þátt fengu mjög góða niðurstöðu og meðaltalið var yfir landsmeðaltali.
  • Í vetur fengum við marga góða gesti, svo sem Björn Berg sem fræddi okkur um fjármál í tengslum við lotu um sama efni, Sögu Úlfarsdóttur sem kom og sagði okkur frá gervigreind, Andreu og Kára frá Fokk me fokk you sem fjölluðu um sjálfsmynd, samfélagsmiðla og samskipti kynjanna svo einhver séu nefnd. 
  • Við tókum þátt í Íslensku æskulýðsrannsókninni.
  • Keppnir eru ekki áberandi í Ásgarðsskóla, en í ár var haldin vegleg og mjög vel heppnuð ræðukeppni og svo má ekki gleyma glæsilegri lip sync keppni þar sem bæði nemendur og kennarar sýndu eftirminnileg tilþrif. 
  • Starfamessan var nýjung. Þar voru 16 starfskynningar sem krakkarnir vilja sannarlega sjá aftur á næsta ári.


Í Ásgarðsskóla er sérstaklega lagt upp með að skólasamfélagið líti á heiminn sem eina heild, beri virðingu fyrir íbúum alheimsþorpsins, umhverfinu, menningu allra, stjórnmálum, tungumálum og listum. Ég held að það sé óhætt að segja að verkefnavinna nemenda sýni að nemendur okkar standi sannarlega undir þeim áherslum sem lagðar eru í skólastarfinu. Ég er vandræðalega spennt fyrir að sjá samantektina á verkefnunum sem krakkarnir unnu í þemanu Lyklinum núna í vor og kynnarnir Dóra og Birgitta fara betur yfir hér á eftir.


Ég er virkilega stolt af þessum mögnuðu verkefnum ykkar – þið eigið eftir að breyta heiminum til hins betra.

Ég vil þakka ykkur, krakkar, fyrir að hafa gefið Ásgarðsskóla tækifæri til að móta skólastarfið með okkur. Þið hafið verið dugleg við að koma með hugmyndir og hjálpað okkur og kennurunum að mæta þörfum ykkar og haldið okkur á tánum við að finna nýjar leiðir sem nýtast ykkur betur dag frá degi.

Þið eruð 24 sem útskrifist héðan í dag. Við ykkur vil ég segja: „Framtíðin er ekki eitthvað sem gerist, hún er eitthvað sem þið skapið.“


Innilega til hamingju með þennan mikilvæga áfanga. Við erum stolt af ykkur, þakklát fyrir að hafa fengið að vera hluti af ykkar vegferð og spennt að fylgjast með því sem framtíðin ber í skauti sér.

Til hamingju með útskriftina, kæru útskriftarnemar.

Ég hlakka til að sjá ykkur hin aftur í haust – þið hafið lagt mikið á ykkur í vetur og ég er sannfærð um að næsta skólaár verður enn betra en það sem er nú að líða.


Takk fyrir mig.


Eftir Kristrún Birgisdóttir 13. janúar 2026
Saga Ásgarðsskóla
Eftir Kristrún Birgisdóttir 29. desember 2025
Kyning á starfsemi Ásgarðsskóla - skóla í skýjunum
7. júlí 2025
Nýja árstíðin er góð ástæða til að taka og halda ályktanir. Hvort sem það er að borða rétt eða þrífa bílskúrinn, hér eru nokkur ráð til að gera og halda ályktanir.